Þú ert hér > siglfirdingur.is


Á flugi í Héðinsfirði

Á sunnudaginn var, 8. ágúst, brá Ragnar Mikaelsson sér yfir í Héðinsfjörð og sveif þar um loftin blá í paramótor sínum eða vélfisi. Aðstæður voru þó ekki upp á það besta, að sögn hans, allt of mikill vindur, 6-7 metrar á sekúndu, og þess vegna ekki vogandi að leita út fjörðinn.

En meðfylgjandi ljósmyndir eru úr þessari ferð og birtar með góðfúslegu leyfi. Sjálfur er flugkappinn kominn til síns heima í Noregi, en hann var í sumarfríi hér ásamt með eiginkonu sinni.

Farkostur þeirra yfir Norður-Atlantshafið var aðeins stærri en þetta tæki, ef einhver skyldi vera að glíma við þá hugsun.

Viðtal, sem undirritaður tók við Ragnar um daginn, mun birtast á vefnum á morgun eða hinn.










































Myndir: Ragnar Mikaelsson.
Texti: Sigurður Ægisson | sae@sae.is








Til baka


Prentvæn útgáfa   Senda síðu   Senda á Facebook